Samantekt um þingmál

Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

594. mál á 152. löggjafarþingi.
Dómsmálaráðherra.

Markmið

Að styrkja varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagðar eru til breytingar á ákvæðum laganna um sýndarfé. Þá eru lagðar til afmarkaðar breytingar á nokkrum ákvæðum laganna með hliðsjón af þeirri reynslu sem orðin er af framkvæmd þeirra. Jafnframt eru lagðar til breytingar til að bregðast við athugasemdum sem Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) gerði í kjölfar úttektar sinnar á innleiðingu fjórðu peningaþvættistilskipunarinnar (2015/849/EB) hér á landi. Loks eru lagðar til breytingar á tilteknum ákvæðum í viðurlagakafla laganna.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 140/2018.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849 frá 20. maí 2015 um ráðstafanir gegn því að fjármálakerfið sé notað til peningaþvættis eða til fjármögnunar hryðjuverka, um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins ESB nr. 648/2012, og um niðurfellingu á tilskipun Evrópuþingsins 2005/60/EB og tilskipun ráðsins og framkvæmdastjórnarinnar 2006/70/EB (fjórða peningaþvættistilskipunin).


Síðast breytt 22.02.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.